jump to navigation

Til hamingju með afmælin! september 28, 2008

Posted by njallb in Uncategorized.
5 comments

Heil og sæl öll

við höfum það voðalega gott. Langt síðan við Blogguðum síðast.

ég er búinn að setja inn fullt af nýjum myndum á flickerinn okkar.

það sem hefur drifið á daga okkar undanfarið er fjöldinn allur af afmælum.

Ég átti afmæli þann 15. sept. og mundu sumir eftir afmælinu mínu og aðrir ekki. eins og gengur og gerist.

svo eru áttu ólíver frændi og Elísabet frænk afmæli líka.

við fórum í veisluna til Ólivers og þar var heilmikið fjör.

svo núna fyrir stuttu áttu amma Vaka afmæli og Himmi, en þau eiga bæði afmæli 26. sept.

og ef ég man rétt þá á Mamma hans Ragga afmæli 27. sept.

og Tvíburarnir Kristrún og Katrín eiga afmæli í dag þann 28. sept.

þannig að það er ekki annað að segja en að óska öllum til hamingju með afmælin sín.

Kveðja

Fjölskyldan á Framnesvegi

Á ferðalagi ágúst 13, 2008

Posted by njallb in Uncategorized.
4 comments

Hæ hó

við erum búin að vera á ferðalagi síðan á fimmtudaginn.

við erum búin að fara á Akureyri, Dalvík og Mývatn.

Auðvitað kíktum við á Fiskidaginn mikla og sníktum okkur súpu, viti menni auðvitað lenntum við í súpu hjá Loga Bergmann og frú. Vorum við alveg furðulostin yfir atganginum þar því fólk dró upp myndavélina og smellti myndum af Loga þegar hann kom út á veröndina. Er hann eithvað Celeb?

Áður en við héldum heim gripum við með okkur eina af hinum Heimsfrægu Tommu pizzum, og þær stóðust allar okkar væntingar.

Á laugardeginum náðum við svo að kíkja á fullt af furðufiskum og skemmtilegheitum ásamt því að fara í útileikhús. Við sáum Galdrakarlinn í Oz. Við skemmtum okkur alveg svakalega vel blíðviðrinu sem braust út í þann mund sem sýningin byrjaði.

Á Mývatni skelltum við okkur í Jarðböðin og kíktum svo í heimsókn til Aldísar.

Þar fengum við nýveiddan silung úr Eilífsvötnum, en Aldís og fjölskildan hennar

höfðu verið að veiða þar um daginn.

Núna erum við stödd á Ólafsfirði hjá ömmu Vöku og afa Björgvin.

Setjum inn ferðalagsmyndir fljótlega.

Fyrstu myndirnar júlí 28, 2008

Posted by njallb in Uncategorized.
3 comments

Hæ hæ

Hérna eru komnar fyrstu myndirnar af henni Ingibjörgu, við hin fengum líka að vera aðeins með http://www.flickr.com/photos/28963857@N08/

Við ætlum að vera með mynda síðu á flicker svo fylgist endilega með :)

kveðja

Njáll

Fjölskyldublogg í vinnslu júlí 28, 2008

Posted by njallb in Uncategorized.
1 comment so far

Jæja þá erum við loksins byrjuð að vinn a í Blogginu okkar.

við ákváðum að vera ekki með Barnalands síðu. Heldur vildum við frekar

hafa fjölskyldublogg þar sem við tökum á því helsat sem ber á garð hjá

fjölskyldunni og einstökum meðlumum fjölskyldunar.

Fylgist endilega með!